1. feb vorum við enn í london og ákváðum að fara að skoða það sem allir ferðamenn eiga að skoða. fyrst var það vaxmyndasafnið sem var mjög töff, við tókum fullt af myndum af okkur með frægu fólki ásamt því að fólk var að bregða okkur í draugahúsi sem var þarna.




eftir þetta fórum við að skoða big ben og london eye ásamt því að rölta þarna eitthvað um, sjá mennskar styttur og allskyns götulistafólk.

næstu 4 daga fórum við til edinborgar að hitta stelpurnar. við vöknuðum snemma, fórum frá stansted til glasgow. þaðan tókum við svo lest til glasgow central og svo lest þaðan og til edinborgar. stelpurnar voru flottar á því og ætluðu að taka á móti okkur á flugvellinum en það fór ekki alveg á besta veg þar sem þær biðu á edinborgar flugvelli en við lenntum í glasgow, takk samt kærlega fyrir móttökurnar. hostelið okkar var magnað, 2 baðherbergi í herberginu með 2 sturtum ásamt fínum kojum. síðan um kvöldið fórum við á tjúttið með stelpunum á stöðunum madogs og city sem var allt hið besta mál.
næsta dag vöknuðum við og fórum á aðal verslunargötuna, kíktum í H&M og keyptum okkur brækur og sokka. Hittum svo stelpurnar fyrst á starbucks (sem er by the way með besta kaffi sem ég hef smakkað) og svo hittum við þær seinna um kvöldið á mexikönskum stað þar sem við fengum okkur að borða. eftir matinn kíktum við á madogs, hittum fótboltabullur og hlustuðum á atvinnu kareoke söngkonu syngja.
þriðja daginn fórum við svo í hádegismat heim til petru. hún eldaði handa okkur brauð með egg og beikoni ofan á sem var geðveikt gott. eftir matinn fórum ég, jónas og auður svo í edinborgarkastalann og skoðuðum hann heillengi. um kvöldið fórum við svo á stað þar sem var salsa kvöld í gangi, við sátum í þægilegum sófum, fengum okkur frosna magarítu og horfðum fólk dansa salsa. sáum áhugaverðar persónur þarna sem við skemmtum okkur vel yfir að horfa á.


síðasta daginn vöknuðum við jónas snemma til að tékka okkur út af hostelinu okkar, röltum á subway og fengum okkur morgunverðarbát með egg og beikoni sem var mjög svo áhugaverður. við fórum svo á peningasafn sem við höfðum séð í bæklingi til þess að drepa tímann. þar var rakin saga skoska bankans sem var ekkert rosalega spennandi. við hittum síðan stelpurnar á starbucks og kvöddum þær. við tókum svo lestina frá edin til glasgow central og allt gekk fínt, áttum svo að taka lestina frá glasgow til prestwick flugvallar en þar sem við vorum á góðum tíma að þá ákváðum við að fá okkur að borða á burger king. þar fékk ég þann minnsta hamborgara sem ég hef á ævi minni séð og varð frekar svekktur. síðan fórum við á platformið okkar og upp í lestina okkar og lögðum á stað á flugvöllinn. í lestinni vorum við bara að taka því rólega, hlusta á tónlist og gera sudoku en eftir um klukkutímaferðalag stoppuðum við í bæ sem hét Gourock og þar drap lestin á sér. ég og jónas fórum nú eitthvað að skoða málið og ég tékkaði á einhverju korti þarna í lestinni. þá var gourock endastöð sem var töluvert langt frá flugvellinu. þá hafði það skemmtilega gerst að ég og jónas fórum upp í vitlausa lest á lestastöðinni, samt nokkurn veginn ekki okkur að kenna. við fórum alveg á rétt platform en á því var lest sem hafði eitthvað tafist og okkar lest var fyrir framan hana, og þar sem miðagæinn sagði ekki neitt þegar hann tékkaði á miðunum okkar héldum við náttúrulega að við værum í hárréttri lest.
þannig að við vorum núna í einhverjum krummaskurði og einhverjir 2 tímar í flugið okkar. í lestinni hittum við svo fólk sem hafði lennt í því sama og við og voru að fara í sama flug og við, skosk kona og enskur kall sem voru að ferðast saman, þannig að við ákváðum að halda hópinn. flugið var klukkan 20:10 en við þurftum að vera mætt 19:30 því þá lokaði tékk inn-ið. við lögðum af stað frá gourock klukkan 18:12 og áttum að vera komin til paisley (lestastöðin þar sem við þurftum að skipta um lest til að komast á flugvöllinn) klukkan 18:42 en það var einn hængur á því lestin sem við áttum að ná átti að fara þaðan klukkan 18:41. við þurftum því að vona að okkar lest væri á réttum tíma og hin væri aðeins sein. við komum svo á réttum tíma til paisley, hlupum á platform 4 þar sem lestin okkar átti að vera en þá var hún farin. við þurftum því að bíða eftir næstu lest, komumst á flugvöllinn, hlupum þvílíkt en það var búið að loka tékk inn dótinu þannig að ég og jónas fengum ekki brottfararpassa en fólkið sem við ferðuðum með komst í flugið þar sem þau höfðu tékkað sig inn á netinu og voru ekki með neinar töskur. frekar svekkjandi að komast ekki í flugið því við vorum 15 mín of seinir í þetta tékk inn, flugvélin átti samt ekki eftir að taka á loft fyrr en eftir 25 mín.
ég og jónas tókum því aftur lest til glasgow útaf því að fólkið var búið að segja okkur að það færi nætur rúta til london. þannig að ég og jónas redduðum okkur um borð rútu klukkan tíu. rútan fór að fyllast af ótrúlegasta fólki, ég held að enginn hafi verið frá sama landi. sumir voru frá svörtustu afríku á meðan aðrir hefði getað verið morðingjar frá serbíu. rútan fór í gang og gamall maður kynnti sig sem david og sagði að hann yrði rútuþjónninn okkar í nótt og að bílstjórinn héti ian. ég og jónas keyptum okkur samlokur og kók um borð en david gamli var svo flottur á því að hann smurði samlokurnar um borð þannig að þær voru ferskar og alveg magnaðar. ferðin var hin fínasta, tók 9 klukkutíma þannig að núna erum við komnir aftur til london.
