jónas varð túristalegur og fékk sér húfu með enska fánanum á. við skoðuðum okkur eitthvað um í london án þess að vita nokkuð hvar sem við værum þar sem við vorum ekki með neitt kort. svo erum við búnir að fara á tvo leiki í enska boltanum á meðan við erum búnir að vera hérna, fyrst arsenal vs. newcastle og svo man utd vs. portsmouth og voru þeir báðir geggjaðir.
síðan eftir united leikinn fórum við á hostelið okkar, spiluðum yatzí við fulla svía og fórum svo að sofa í herbergi með fjórum öðrum karlmönnum, þar á meðal einum sem vaknaði um nóttina til að æla geðveikt mikið.
við erum svo að fara til edinborgar 2. feb að hitta stelpurnar og gera eitthvað skemmtilegt þar.