jónas varð túristalegur og fékk sér húfu með enska fánanum á. við skoðuðum okkur eitthvað um í london án þess að vita nokkuð hvar sem við værum þar sem við vorum ekki með neitt kort. svo erum við búnir að fara á tvo leiki í enska boltanum á meðan við erum búnir að vera hérna, fyrst arsenal vs. newcastle og svo man utd vs. portsmouth og voru þeir báðir geggjaðir.
síðan eftir united leikinn fórum við á hostelið okkar, spiluðum yatzí við fulla svía og fórum svo að sofa í herbergi með fjórum öðrum karlmönnum, þar á meðal einum sem vaknaði um nóttina til að æla geðveikt mikið.
við erum svo að fara til edinborgar 2. feb að hitta stelpurnar og gera eitthvað skemmtilegt þar.
4 comments:
Nice ;) ekki lélegir leikir sem þið hittuð á heldur. En skemmtiði ykkur bara vel.
Svíarnir klikka ekki hehe...
meistarar
hey beibs
takk fyrir helgina! það var alveg magnað að hafa ykkur hér hjá okkur, hefðum samt viljað hafa ykkur lengur. hér má sjá nokkur skemmtileg móment frá helginni:
www.flickr.com./petrapeturs (birtingarhæft)
www.picasaweb.google.com/hannapeturs (ekki við hæfi)
hafið það gott, ví miss jú gæs olredí ;)
kv. kærusturnar í Edinborg
Post a Comment