Friday, February 22, 2008

eftir amsterdam fórum vid til hamburg en aðal ástæðan fyrir þvi ad vid fórum þangad var ad þar voru mars volta tónleikar sem vid áttum miða á. hamburg er ekkert sérstök borg, alla vegana ekki það sem vid sáum, hún minnti mest á bulgariu. daginn fyrir mars volta tónleikana fórum vid út ad tékka a lífinu, duttum inn a stað thar sem þungarokks hljómsveitin drat var med tonleika. bassaleikarinn og söngvarinn upp á barborði ad spila og syngja á meðan gitarleikarinn og trommarinn voru niðri ad spila. þetta voru finustu tónleikar, alls ekki góð hljómsveit en við fórum bara inn í þetta med réttu hugarfari, fannst þetta aðalega fyndið.
eftir drat tónleikana kíktum við a klúbbagötuna og fórum á stað sem hét love. thad var staður sem var bara nánast alveg eins og sjallinn. þegar vid fórum svo heim sáum vid vændiskonur í snjógöllum, það var frekar fyndið.

svo kom mars volta dagurinn. þá forum vid á tónleikana sem voru geggjaðir. mars volta gaurarnir voru i rosalegum gir og trommarinn var ekkert smá svalur, alltaf brosandi og trommandi á miljón allan timann. fólk var í mis miklum gír þarna, ég og jónas byrjuðum mjög framarlega, svo þegar tónleikarnir byrjuðu þá trylltust sumir þarna. heavy moss pit myndaðist þar sem fólk hoppaði um og ýtti hvort öðru, eg og jonas vorum smá stund í þeim látum en færðumst svo aftur a bak eftir því sem leið á tónleikana. tonleikastadurinn var ekki mikid stærri en sjallinn sem var mjog kul.















það sem einkenndi mikið hamburg var pizza hut. pizzurnar þar voru svo góðar að ég borðaði þannig í næstum öll mál. við ferðuðumst svo frá hamburg til prag. þar mættum við og hittum gaurinn sem ætlaði að láta okkur fá lykil að herberginu okkar en þá sagði hann okkur að það hefði verið eitthvað rugl með herbergið okkar en að við myndum fá íbúð fyrir sama verð. þannig að þá rölti hann með okkur á nýja staðinn, sem var þvílíkt fín stúdíó íbúð sem við fengum fyrir ekki neitt. hún var meira að segja svo örugg að maður þurfti að fara í gegnum 4 hurðir, sumar með tvöföldum lásum, til að komast inn í hana.





























í prag vorum við aðalega bara að túristast enda nóg að skoða þarna, hundgömul astronomical clock sem var alveg ómögulegt að lesa af, kastali, stytta með manni á hesti og svo margt margt annað. svo römbuðum við á mjög áhugaverðann stað sem hét resturant reykjavík. við skoðuðum matseðilinn og þarna var hægt að fá rétti eins og hekla mountain, baccala keflavík og baccala akureyri. staðurinn var skreyttur með íslenska skjaldarmerkinu og alles. hálfur líter af tékkneskum budweiser kostaði líka 40kr í tékklandi sem er náttúrulega bara grín.



































































núna erum við svo í bratislava í slóvakíu þar sem við verðum næstu daga og eftir það er það zagreb í króatíu.

3 comments:

Anonymous said...

djöfulsins snilld

Unknown said...

Hvaa afhverju eru bara myndir af Jónasi?

criticts said...

þetta voru bara myndir úr minni myndavél, þú getur bara séð fullt af myndum þegar við komum til malmö